Fréttir

Andrésar Andar leikarnir 2024

Dagana 25.-27.apríl sl fóru 48. Andrésar andarleikarnir fram á Akureyri. Eins og alltaf var Skíðafélag Dalvíkur með glæsilegan hóp þátttakenda, en þetta árið fóru 98 keppendur sem ýmist voru á svigskíðum eða brettum. Fyrir utan keppendur var einnig stór hópur foreldra, þjálfara og farastjóra og má reikna með að allur hópurinn hafi verið uþb 150 manns. Krakkarnir stóðu sig gríðarlega vel hvort sem var í brekkunum eða utan þeirra. Á andrésarleikum er verðlaunað í hlutfalli við fjölda keppenda, 8.ára og yngri fá þátttökuverðlaun. Hér fyrir neðan er listi yfir þá keppendur frá Skíðafélaginu sem komust á pall. 8.ára og yngri hlutu öll þátttöku verðlaun enda stóðu þau sig frábærlega. Þetta árið voru 35 keppendur frá Skíðafélaginu.
Lesa meira